Þegar allt er talið lítur kennaraferillinn svona út:
einkakennsla í íslensku frá haustinu 2016
kennsla í íslensku sem öðru máli frá skólaárinu 1998
íslenskukennsla í bókmenntaáföngum við Sumarskóla FB (2011-2019)
afleysingakennsla í yngri bekkjum Austurbæjarskóla (2014-2015)
framhaldskólakennsla í íslensku (1995-2010)
stundakennsla við Háskólann á Akureyri (1998-2008)
bekkjar- og tungumálakennsla við Dalvíkurskóla (1984-1985)
Í dag kenni ég íslensku sem annað mál hjáMími símenntun. Ég kenni sama fag í einkakennslu.
Íslenska sem annað mál
Kennsluferillinn í íslensku sem öðru máli hófst hjá Verkmenntaskólanum á Akureyri haustið 1998.
Fyrst í kvöldskóla á íslenskunámskeiðum í fullorðinsfræðslu.
Síðar í dagsskóla í ÍSA-áföngum.
Eftir stutt hlé frá annarsmálskennslu í íslensku var þráðurinn tekinn upp aftur haustið 2010 í MK þar sem ég kenndi eina önn. Annarsmálskennsla í íslensku hefur verið aðalstarf frá upphafi árs 2011 en þá hóf ég störf hjá Mími símenntun.
Íslenska og samfélag - nóv. 2019
Íslenska 3 - ág. 2014
Hjá Mími hef ég kennt fullorðnum íslensku sem annað mál áfjölbreyttum námskeiðum. Hér er það helsta talið:
Íslenska fyrir alla á stigum 1-6
íslenska tal 2-3
íslenska og samfélagsfræðsla á 2. og 4. stigi
íslenska á ýmsum starfstengdum námsleiðum
íslenska sem annnað mál á vinnustöðum
fjarnámskeið á 4. og 5. stigi (þróunarverkefni 2016-2017)
Einkakennaraferillinn hófst sumarið 2016. Verkefnin hafa verið skemmtilega fjölbreytt eins og eftirfarandi verkefnalisti sýnir:
annarsmálskennsla fyrir fullorðna frá mismunandi heimshornum og á mismunandi stigum í íslensku sem öðru máli.
undirbúningskennsla fyrir íslenskupróf vegna ríkisborgararéttar.
undirbúningkennsla fyrir inntökupróf í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands.
stuðningur og málörvun í íslensku tvítyngdra nemenda á öllum stigum grunnskóla.
undirbúningskennsla, íslenskumælandi og tvítyngdra nemenda í efri bekkjum grunnskóla, fyrir samræmd próf í íslensku.
kennsla, stöðumat og ráðgjöf fyrir systkinahóp á aldrinum 7-15 sem á íslenska foreldra en býr erlendis.
upprifjunarkennsla íslenskumælandi stúdentsefnis fyrir lokapróf í bókmenntaáföngum í íslensku.
Önnur kennslureynsla
Grunnskóli
Framhaldsskóli
Háskóli
Grunnskóli
Fyrstu kennslureynsluna hlaut ég við Dalvíkurskóla. Þar var ég bekkjarkennari í 6. bekk veturinn 1984-1985. Auk þess kenndi ég dönsku í 5.-6. bekk, ensku í 6. bekk og þýsku í 10. bekk.
Skólaárið 2014-2015 var ég forfallakennari við Austurbæjarskóla. Ég kenndi einkum í yngri bekkjum skólans. Það var mjög forvitnileg reynsla þar sem forfallakennsla reynir mikið á sveigjanleika og aðlögunarhæfni kennarans.
Austurbæjarskóli í Reykjavík
Framhaldsskóli
Eftir útskrift, sem framhaldsskólakennari í íslensku vorið 1995, fékk ég stöðu við Verkmenntaskólann á Akureyri. Þar starfaði ég í 14 ár (1995-2010).
Auk almennrar kennslu fékk ég tækifæri til að afla mér reynslu af fjarkennslu og kennslu á námskeiðum í fullorðinsfræðslu. Þar á meðal í íslensku sem öðru máli.
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Haustönnina 2010 var ég afleysingarkennari í almennum íslenskuáföngum og einum ÍSA-áfanga við Menntaskólann í Kópavogi.
Sumurin 2011-2019 kenndi ég ég svo við Sumarskóla FB og væri þar sjálfsagt enn ef hann væri enn þá starfandi. Auk þessa kenndi ég í stuttan tíma í forföllum við dagskóla FB á vorönn 2019.
Fjölbrautarskólinn í Breiðholti
Háskóli
Frá 1998 til 2008 var ég stundakennari við Háskólann á Akureyri. Nemendahóparnir voru tveir:
hjúkrunarfræðinemar á lokaári
og leikskólakennaranemar
Hjúkrunarfræðinemunum kenndi ég ritun fagtímaritsgreina. Leikskólakennaranemunum barnabókmenntir í einn vetur.
Við notum nauðsynlegar vafrakökur til að tryggja að við gefum þér bestu upplifunina á vefsíðunni okkar. Ef þú heldur áfram að nota þessa síðu munum við gera ráð fyrir að þú sért ánægður með hana.Allt í lagiPersónuvernd