10% afmælisafsláttur
16. - 19. nóvember
Íslenskunáman er 10 ára😊 og býður notendum
10% af öllum vörum af því tilefni.
10% off all study material on November 16-19.
Finndu flokkaða krækjulista yfir námsleiki Íslenskunámunnar og leiðbeiningarmyndbönd
frá Quizlet og Kahoot! með því að smella á viðeigandi hnapp.
[give_form id=”5884″]
Námsleikir Íslenskunámunnar á Quizlet henta bæði í tímum og sem heimaverkefni.

Quizlet kemur mjög vel út í viðbótinni fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Til að hlaða henni niður þarf að búa til reikning á Quizlet.
Það er hægt að spila Flashcards og Match án innskráningar með því að fara inn á quizlet.com í gegnum hvaða vafra sem er.
Til að spila Learn og Test þarf að stofna nemenda- eða kennaraaðgang. Til að spila leikina sem eru merkt með rauðum hökum þarf kennaraaðgang og að minnsta kosti tvo spilara (sjá nánar á Quizlet).
Nemendur taka þátt í Live og Checkpoint á quizlet.live
Það er mjög mikið til af efni frá Íslenskunámunni inni á Quizlet. Efnið er enn í vinnslu. Það sem er lengst komið eru námsleikir fyrir nemendur á 1. og 2. stigi í íslensku sem öðru máli eða um 100 leikir fyrir hvort stig.
Höfundur Íslenskunámunnar hefur búið til alls 109 námsleiki inni á Quizlet fyrir 1. stigið. Stefnt er að yfirferð og betrumbótum á þessum leikjum og skipulagi þeirra en eins og er þá er þetta efni sett fram í tveimur hlutum.
Þú getur líka skoðað yfirlit yfir allar æfingarnar eða vistað það hjá þér og notað krækjurnar til að komast beint inn í einstaka námsleiki.
Höfundur Íslenskunámunnar hefur búið til alls 109 námsleiki inni á Quizlet fyrir 2. stigið. Stefnt er að yfirferð og betrumbótum á þessum leikjum og skipulagi þeirra en eins og er þá er þetta efni sett fram í tveimur hlutum.
Þú getur líka skoðað yfirlit yfir allar æfingarnar eða vistað það hjá þér og notað krækjurnar til að komast beint inn í einstaka námsleiki.
Höfundur Íslenskunámunnar hlaut styrk til að búa til gagnvirk verkefni fyrir fullorðinsfræðslu í íslensku sem öðru máli. Styrkurinn entist til að setja fram gott úrval æfinga fyrir fyrstu tvö stigin. Framhaldstyrkur til að halda verkefninu áfram hefur hins vegar ekki hlotist enn.
Það eru þó einhver verkefni tilbúin fyrir 3. stigið. Rétt er að taka fram að þau eru mislangt á veg komin.
Quizlet hefur verið að fara í gegnum umfangsmikið uppfærsluferli. Þetta myndband sem er frá haustinu 2021 skýrir vel hvernig Quizlet Live virkar. Það er líka hægt að nálgast skrifaðar leiðbeiningar á vefsíðu Quizlet.
Þú getur styrkt Íslenskunámuna til að búa til fleiri fría Quizlet-leiki með því að velja upphæð hér að neðan 🡻
Þú getur styrkt Íslenskunámuna til að búa til fleiri fría Quizlet-leiki með því að velja upphæð hér að neðan ↓

Námsleikir Íslenskunámunnar á Kahoot! henta sérstaklega vel í tímum en er líka hægt að setja fyrir heima.
Það er hægt að spila Kahoot! jafnt í tölvum og á snjalltækjum. Til að finna námsleiki eða búa þá til er farið inn á kahoot.com
Nemendur fara hins vegar inn á kahoot.it til að spila leikina. Einnig er hægt að hlaða niður viðbót fyrir snjallsíma og spjaldtölvur og taka þátt í gegnum hana.
Það er mjög aðgengilegt að nota Classic Mode á Kahoot! til að komast að því hvar nemendur standa í tilteknum námsþætti og koma að leiðbeiningum á milli spurninga.

Það er töluvert mikið til af efni frá Íslenskunámunni inni á Kahoot!. Efnið er enn í vinnslu. Það sem er lengst komið eru námsleikir fyrir nemendur á 2., 3. og 4. stigi í íslensku sem öðru máli eða um 10 leikir fyrir hvert stig.
Langflestir námsleikir Íslenskunámunnar á Kahoot! eru settir upp sem eins konar krossaspurningar. Það er hægt að spila þá á þrenna vegu í tímum en svo er líka hægt að setja þá fyrir heima í gegnum Assign.
Hér eru krækjur sem leiða þig í námsleikjasöfn fyrir stig 1-5.
Athugaðu að þú þarft að vera innskráður á Kahoot! til að krækjurnar leiði þig inn í söfnin sem þær vísa á.
Kahoot! hefur verið að uppfærast og hefur ekki enn gert leiðbeiningamyndband fyrir nýja viðmótið. Þetta, sem er frá árinu 2019, gefur þó ágæta hugmynd um það hvernig á að spila Kahoot! með nemendum.
Íslenskunáman hefur sett saman tvö örnámskeið sem er hægt að kaupa inni á markaðstorgi Kahoot! Efnið er ekki eingöngu ætlað nemendum heldur geta kennarar og skólar líka keypt ársaðgang að settunum til að nota í tímum eða setja nemendum fyrir heima.

Farið í einingar, tugi, hundruð og þúsund með áherslu á það hvernig tölurnar 1-4 breytast eftir kyni í nefnifalli.

Nemendur byggja upp lýsingarorðaforða og læra hvernig lýsingarorðin breytast eftir kyni í nefnifalli, eintölu.

Tveir stærstu gallarnir: ① Þegar stuðst er við utanaðkomandi hugbúnað ræður þú ekki framsetningunni sjálfur. ② Það tekur tíma að kenna nemendum hvernig hugbúnaðurinn virkar.
Hins vegar eru kostir þess að bjóða upp á gagnvirka námsleiki ótvíræðir. Þannig gefst ekki aðeins kostur á að brjóta upp kennslustundirnar heldur líka að kanna stöðu nemenda í tilteknum námsþætti.
Hópleikirnir, sem bæði Quizlet og Kahoot! bjóða upp á, eru líka fyrirtaks leið til að nemendur læri hver af öðrum.
Uppfært 9. júní 2023
Íslenskunáman er 10 ára😊 og býður notendum
10% af öllum vörum af því tilefni.
10% off all study material on November 16-19.